Rannsóknir á Menntavísindasviði

Allar rannsóknir

gaelle-marcel-AWidiBoRO08-unsplash
Supporting Open Learning and Understanding Teens In Opportunities for Neighbourhoods and Nature
By implementing the project we want to achieve stronger neighbourhoods where marginalized students find meaning and hope in the face of global challenges through local activities based on STEAM learning and networking across formal and informal educational settings.

01/12/2025
31/10/2028
Borgaravitund
Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum
Meginmarkmið verkefnisins er að kanna með hvaða hætti hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og starfi íslenskra UNESCO framhaldsskóla. Í samvinnu við kennara og nemendur leitum við svara við því hvaða alþjóðlegu áskorunum er mikilvægast að mæta í sameiningu og hvernig miðla megi upplýsingum um mannréttindi, sjálfbærni og frið á þann hátt að það efli virka þátttöku, félagslega tengslamyndum og lýðræðislega upplifun allra í skólanum.

01/01/2026
31/12/2028
pexels-yankrukov-8612988
TEACH-RIGHTS
Verkefnið felst í greiningu á kennaramenntun í þremur samstarfslöndum með tilliti til réttinda barna og lýðræðislegrar borgaravitundar. Unnið verður reglulega með nemendum og fræðafólki í námslotum yfir verkefnatímabilið, með það að markmiði að efla skilning á gildi og mikilvægi réttindamiðaðrar nálgunar í námi ungra barna.

14/12/2025
13/12/2027
pexels-ann-h-45017-2210543
Aðferðir leiklistar í námi grunnskólabarna í ljósi fjölmenningar
Markmið rannsóknarinnar er að öðlast dýpri skilning á aðferðum leiklistar er varðar fjölmenningarkennslu í grunnskólum. Nálgun rannsóknar verður út frá þeirri hugsun að nota megi aðferðir leiklistar til að nálgast nám og kennslu fjölbreyttra nemendahópa þar sem unnið er út frá reynslu nemenda og þeir verða virkir þátttakendur.

01/01/2025
Hæglæti
Norrænt samstarfsnet um hæglæti í uppeldi og menntun
Verkefnið Reclaiming Slow Nordic ECEC network miðar að því að bregðast við auknu álagi og hraða í menntun og uppeldi og streitu kennara með því að efla hæglætismenntun og norræn gildi í leikskólastarf og í kennaramenntun. Markmið netsins er að stuðla að sjálfbærri, barnmiðaðri og ígrundandi starfsmenningu í leikskólum og í háskólum. Lögð verður áhersla á nýsköpun í kennaramenntun.

01/06/2025
01/06/2028
pexels-alex-green-5691865
EMPOWER
EMPOWER verkefnið miðar að því að taka á kynjamisrétti í menntun í upplýsingatækni (UT). Markmiðið er að auka áhuga og þátttöku stúlkna í upplýsingatæknigeiranum með því að innleiða tvö lykilinngrip: þjálfun í kynjafjölbreytileika fyrir kennara og fyrirmyndakynningar undir forystu farsæla kvenkyns UT-sérfræðinga.

01/04/2025
31/03/2028
Mynd Staða leiklistakennarans
Staða leiklistarkennarans í grunnskólum á Íslandi
Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt. Annars vegar að skoða starfsþróun þeirra leiklistarkennara sem hafa útskrifast sem leiklistarkennarar frá HÍ og hins vegar að fá betri innsýn í leiklistarkennslu á vettvangi. Það er mikilvægt að skoða þetta tvennt saman með uppbyggingu kennaramenntunar í huga.

08/09/2025
picture
Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum
Rannsóknarverkefnið Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum beinir athygli að hlutverki íslenskra fjölskyldna í loftslagsaðgerðum og sjálfbærni. Með greiningu á menningarafurðum og þátttöku fjölskyldna víðs vegar af landinu gefur verkefnið nýja sýn á réttlæti, samfélag og umhverfi.

01/01/2025
31/12/2028
bruno-nascimento-PHIgYUGQPvU-unsplash
Andleg líðan og notkun fæðubótarefna meðal íþróttafólks á Íslandi
Rannsakendur við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík standa að rannsókn á andlegri líðan og notkun fæðubótarefna meðal íþróttafólks í fremstu röð á Íslandi. Með niðurstöðum þessarar rannsóknar er hægt að kortleggja betur það andlega álag sem íþróttafólk í fremstu röð stendur frammi fyrir og hver notkun þeirra, þekking og viðhorf eru til fæðubótarefna, löglegra og ólöglegra.

20/01/2025
Raunfærnimat
Innleiðing á raunfærnimati til styttingar náms
Markmið verkefnisins er að þróa og innleiða raunfærnimat til styttingar náms við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Hver skóli velur námsleiðir til að innleiða raunfærnimat við t.d. kennaranám, iðn- og tæknifræði, fatahönnun og lögreglufræði.

01/01/2025
pexels-pixabay-163427
Heildarsýn og umbætur í kennaramenntun: Framþróun fyrir íslenskt menntakerfi
Tilgangur rannsóknarverkefnisins er að kanna með heilstæðum hætti inntak grunnskólakennaranáms á Íslandi. Verkefnið veitir mikilvæga sýn á undirbúning kennara á landsvísu sem og mótar og prófar aðferðir í kennaramenntun sem tengja saman fræði og starf með árangursríkum hætti.

31/01/2024
31/12/2027
john-schnobrich-2FPjlAyMQTA-unsplash
Nemendaráð og þátttaka ungs fólks á Norðurlöndum
Markmiðið er að kortleggja nýja þekkingu um stöðu nemendaráða í grunnskólum bæði nú og á meðan á Covid-19 heimsfaraldrinum stóð. Rannsóknin er mikilvægur þáttur í víðtækara verkefni Norræna Velferðarráðsins um rétt barna og ungmenna til að láta í sér heyra í skóla og frístundum dagsdaglega og á meðan á Covid-19 stóð. 

01/06/2024
30/06/2025
Að skapa þekkingu saman
Að skapa þekkingu saman – Sjálfbær leikskólastarfsemi og stjórnsýsla á Norðurlöndum
Á Norðurlöndum hefur skapast þörf fyrir að efla handleiðslu, leiðsögn og mat á leikskólastarfi til að styðja við framkvæmd laga og reglna, ásamt því að bæta gæði starfsins. Markmið verkefnisins er að skapa sjálfbæra þekkingu og verkfæri til að styðja við stjórnsýslu og eftirlit með leikskólastiginu. Þetta er gert með því að miðla reynslu og beita nýstárlegum, aðferðum á vinnustofum og í rannsóknum.

01/09/2024
31/08/2026
jeswin-thomas-z4A6Vdg_4RE-unsplash
Kennsluhættir í starfsnámi á Íslandi: Áskoranir í síbreytilegu landslagi
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna kennsluhætti í starfsnámi á Íslandi í ljósi breytinga sem hafa orðið á samsetningu nemendahópsins á síðustu árum. Greindar eru breytingar í aðsókn að starfsnámi og þróun í samsetningu nemendahópsins auk þess sem kennsluhættir á þremur starfsnámsbrautum eru kannaðir til að varpa ljósi á þá styrkleika og áskoranir sem fylgja ólíkum kennsluháttum.

01/02/2024
31/12/2027
Heilsuferdalagid
Heilsuferðalagið – Langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988
Heilsuferðalagið er langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988 og er ein af fyrstu rannsóknum á Íslandi til að skoða ítarlega langtímaþróun á heilsufars tengdum þáttum á mótunarárunum frá unglingsaldri til fullorðinsára. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands auk erlendra samstarfsaðila.

01/01/2024